Er búinn að vera í hálfgerðu dúlli undanfarinn mánuð með alveg æðislegri stelpu. Ég hringi í hana á hverjum degi, ef það er eitthvað vandamál spyr ég hana hvernig henni líður og er alltaf tilbúinn til að tala við hana. Ég veit ekki hvernig þetta lítur út séð frá hennar sporum en hún hringir nú í vikunni í mig og segir að þetta eigi ekki eftir að ganga hjá okkur. Nú er ég einfaldlega í þeirri stöðu að ég veit ekki rassgat hvað gerðist og enginn vill segja mér neitt. Ég er ekki búinn að komast yfir hana og dauðlangar að hringja í hana og bjóða henni í bíó eða eitthvað en veit að mér verður neitað. Hvað á ég að gera til að fá hana til að hringja í mig?