Sent inn fyrir notenda!

—-

Hæ, ég held ég sé vangefin. Fyrir 4 árum átti ég rosa góðan vin sem ég var soldið skotin í og hann var líka skotinn í mér, en svo þurfti ég endilega að byrja með öðrum gæja sem kom rosa illa fram við mig (siðleysingi sem ber enga virðingu fyrir kvenmönnum því hann var alinn þannig upp.. seriously) var með honum í 3 ár og svo er eg núna með öðrum strák sem ég er búin að vera með í næstum ár.

Ég og þessi vinur minn höfum lítið talað saman núna í 2 ár, held það sé útaf því við lúlluðum saman fyrir 2 árum og það einhvern veginn eyðilagði allt. Allt hvað?! I DONNO! Varð alltof vandræðalegt eða eitthvað, æi ég veit ekki en þetta eyðilagði sambandið á milli okkar og þetta varð bara mega asnó. Allavega, yfir þennan tíma hef ég alveg fundið fyrir smá söknuði en núna dreplangar mig svo að tala við hann og hitta hann og allt það en ég er ekki einu sinni með númerið hans og það yrði bara mjög asnó ef ég færi að hringja í hann allt í einu eða senda honum sms, held hann hafi líka bara zero áhuga á því að þekkja mig því hann hefur ekki sýnt SNEFIL af áhuga á því að vilja þekkja mig síðustu 2 ár, sure höfum spjallað saman í partíum en það er ekki oft sem það gerist. Reyndi reyndar að tala við hann fyrir nokkrum mánuðum í teiti sem við bæði vorum í en hann labbaði held ég alltaf bara í burtu! (var soldið full) og æji ég veit kki mér líður bara illa því ég sakna hans og vildi að ég hefði notað tækifærið með honum fyrir 4 árum eða sleppt því að sofa hjá honum í hittifyrra. FUCK MY LIFE. Var samt að tala við hann áðan á facebook í alveg klst r sum, reyndar bara casual samtal um allt og ekkert.

Ég veit ekki alveg af hverju ég postaði þessu inná þessa stupid vefsíðu, vildi bara skrifa þetta niður og fá álit hjá hlutlausum aðilum. Hvernig álit? ÉG VEIT EKKI.

Bætt við 28. maí 2010 - 03:36
Mig langar svo að vita hvort ég gæti átt annað tækifæri með honum, hvernig mynduði fara að því, skref fyrir skref, að komast að því? Er sko EKKI að fara að spyrja hann hreint út, nowai, never ever ever ever.