Ég fékk skilaboð frá notanda um að setja inn nafnlausan þráð. Endilega svarið eftir bestu getu


“nú er ég forvitin, öll þið. Einhver af ykkur hefur örugglega haldið framhjá eða komið nálægt því. Þegar það gerist, þýðir það að ykkur þykir ekki vænt um maka ykkar eða berið ekki virðingu fyrir honum/henni?
Mun svona fólk einhverntíman breytast? Once a cheater, always a cheater?
Ég kann ekki á svona, ég veit að mínum gaur þykir vænt um mig og ég vill skilja hvað fær hann til að kyssa og þyggja kynferðislegar atferðir af öðrum stelpum. Ég vil minnast á að öll tilfelli hefur hann verið ölvaður og eða drukkinn.”