Ég hef aldrei skrifað svona áður, en ég ákvað að prófa:)
Ætla að segja ykkur frá vandamáli sem ég veit ekki alveg hvernig ég á að höndla. Þigg allar ráðleggingar takk:)

Ok, ég og kærastinn minn erum búin að vera saman í bráðum eitt og hálft ár. Við erum bæði 17 ára.
Við höfum alltaf átt gott samband, stundum mikið kynlíf og gerum oft eitthvað skemmtileg og nýtt saman.

En fyrir stuttu síðan var ég ein heima hjá honum meðan hann er í skólanum og ákvað að skella mér í tölvuna hans. Allt í góðu með það, fer á facebook og er eitthvað að dunda mér.
Svo ætla ég að vista einhverja mynd af mér og systur minni í tölvuna, þá kemur þessi mappa upp sem heitir einfaldlega "New folder“ og þar blasti við mér hellingur af myndum af stelpum úr skólanum okkar, vinkonum mínum og stelpum sem ég þekki.

Ég fékk létt sjokk við að sjá þetta, því þetta voru oftar en ekki myndir sem brjóst og fleira sáust mjög vel, sem sagt kynþokkafullar myndir.
Svo sá ég að það voru líka myndir með stelpum úr bekknum hans.

Þetta gerist, hann kemur heim og ég spyr hann einfaldlega: ”Hvaða mappa er þetta sem þú ert með í tölvunni þinni?“
Hann verður vandræðalegur og veit ekkert hvað hann á að segja, þar til hann segir að ”strákarnir" hafi verið að þessu meðan hann var með þeim, þeir höfðu bara verið að grínast aðeins.
Ég átti bágt með að trúa þessu en ég gerði það nú samt.

2 dögum síðar fer ég að tala við hann um þetta því þetta situr alveg rosalega mikið í mér. Ég er með mjög lágt sjálfstraust eftir erfiða æsku og er nokkuð afbrýðissöm.
Ég bið hann um að segja mér sannleikann og jú, þá segir hann að strákarnir höfðu ekki verið hjá honum og hann hafði gert þetta sjálfur.

Mér hafði verið alveg sama ef þetta hafði verið klám t.d. ég er ekkert á móti því að hann runki sér yfir klámi og klámstjörnum, en þetta sló mig algjörlega út af laginu, er það eðlilegt eða er ég bara svona rosalega hörð út af þessu?

Núna þegar við erum að stunda kynlíf t.d. þá velti ég fyrir mér hvort að hann sé að hugsa um mig, hvort að ég sé nóg fyrir hann eða hvort að hann sé að sækjast eftir einhverju öðru en mig.
Það er mjög óþægilegt að líða svona og ég vil að við lögum þetta. Ég veit bara ekki hvað ég get gert til þess að fyrirgefa honum og að allt verði venjulegt aftur, endilega hjálpið mér og deilið reynslu ykkar!

Tek allri gagnrýni, takk :)