ég verð að fá að pústa, vinir minir gátu ekki ráðlagt mer neitt þartil einn stakk upp á því ég kæmi bara fram nafnlaust á huga.is, þannig eg vona að þið hugarar getið hjálpað mer.

ég lenti i þeim ömurlega hlut að kærastinn minn braut á traustinu hjá mér allveg rosarlega[hellt sammt ekki frammhja mer, en braut rosarlega á traustinu],
og mer finnst bara ervitt að horfa á hann eftir þetta, við erum búin að vera saman í langann tima og aldrei neitt alvarlegt komið upp á fyrr en nuna eftir þetta finnst mer bara allt við hann ömurlegt, eg hata hann! en sammt elska eg hann svo rosarlega mikið.
það seigja mer lang flestir að láta hann fara að hann egi mig ekki skilið eftir það sem hann gerði, en hinir seigja mer að gefa honum séns og leifa honum að sanna sig.
eg er bara svo reið, eg veit ekki hvað ég á að gera, hann býr hjá mer þannig hann getur ekkert annað farið nema þá aftur heim til mömmu og pabba,
en eg einthvernveginn get ekki hætt með honum, en get sammt ekki leift honum að snerta mig, eg get ekki kisst hann.
hann hefur bara ekkert traust hjá mér lengur, og eg veit ekki hvað ég á að gera, eg elska hann svo heitt en sammt særir hann mig meira en allt! og eg veit ekkert hvað ég á að gera!
endilega, ef þið hafið einthvað að seigja, endilega deilið þvi án þess að vera með leiðindi:/