Okei, það er nú ekki mikill tilgangur með þessum kork, heldur verð ég bara að koma þessu frá mér.
Þannig er það að ég var að tala við strák fyrir nokkrum mánuðum bara á msn og í síma og við náðum alveg rosalega vel saman og þetta er alveg frábær strákur en ég þorði aldrei að hitta hann.
Svo endaði það frekar illa vegna þess að hann var orðinn svo hrifinn af mér og ég reynar af honum en ég heimskaðist til að kyssa annann strák svo að well, svo fór sem fór..
Einhverju seinna byrjaði hann með stelpu og mér leið geðveikt illa, svo um áramótin var hann að tala um að hann vildi hitta mig og vera með mér og kyssa mig og eitthvað alveg edrú og hringdi í mig og allt til að óska mér gleðilegs nýs árs, en ég hitti hann ekkert. Svo talaði ég við hann eitthvað aðeins eftir áramótin og þá var hann bara alveg breyttur og fluttur inn með kærustunni og eitthvað vesen.
Og núna, strákurinn sem að var besti vinur minn, sem að ég var hrifin af, sem að ég gat treyst fyrir öllu í heiminum, svarar mér ekki einu sinni þegar ég reyni að ná sambandi við hann.