sko, ég er svo hrifin af strák og ég er svo feimin við stráka sem ég er hrifin af. Við æfum saman íþrótt en hann er einu ári eldri svo hann færðist upp um flokk svo ég fór að sjá hann minna og varð á meðan hrifin af honum. Ég er svo svekkt að því ég hefði getað kysst hann en ég var ekki hrifin af honum þá svo ég gerði það ekki en sé mjög eftir því núna. Málið er það að ég veit ekkert hvernig ég á að láta hann vita að ég sé hrifin af honum því við erum búin að vera vinir svo lengi. Það er svo erfitt að hitta hann því íþróttin tekur allan frítíma og þegar við hittumst þá hittumst við á æfingum sem er ekki rétti staðurinn til að sega svona hluti. Þá er bara um eitt að ræða… facebook eða msn en ég hef bara ekki hugmynd hvað ég á að sega við hann ég er svo hrædd um að sega einhvað asnalegt eða eitthvað sem hann skilur ekki. Ég get ekki hætt að hugsa um hann..
hjálp hvernig á ég að skapa þær aðstæður að ég geti sagt honum eða látið hann vita hvernig mér líður??