Jæja … Besti vinur minn var búinn að vera hrifinn af mér í mjög langan tíma. Hann vildi vera með mér öllum stundum. Mér þykir svo vænt um hann. Hann gerði allt sem ég bað hann um að gera :) hann var svo góður við mig ! :) Ég var blind á hrifninguna! Ég bara sá það ekki fyrr en eina helgina. Þetta var helgi þar við eyddum miklum tíma saman. Stelpurnar tóku eftir því hversu hrifinn af mér hann var. Bara hvernig við létum. Mér fannst það svo venjulegt:) en stelpurnar sögðu að þarna væru straumar á ferð. Á laugardeginum var ball í skólanum. Ég og hann löbbuðum saman um allt. Töluðum við vini okkar og höfðum rosalega gaman. Hann bað mig um koss. Ég gaf honum koss á munninn, svona bestfreinds-kiss. Hann var sáttur með það:) Svo fer hann til vina sinna. Síðan rétt fyrir ballið reyndi önnur stelpa að kyss'ann og hann ýtir henni frá og segir við hana ,,Nei , sorry ! ég get þetta ekki! Ég er hrifinn af annarri!" Mér er sagt frá þessu. Mér finnst það sætt af því að ég vissi að ég væri þessi önnur sem hann var hrifinn af !:D Við dönsuðum ! Við áttum dansgólfið :) Ég hef aldrei séð hann brosa svona mikið! :) ég var THE center of attention! :)<3 Hann sá bara mig. Ef ég reyndi að fá einhvern til að stíga dansinn með okkur þá fór hann fyrir mig og brosti sínu blíðasta. Ég vildi ekki gera neitt með honum af því að þennan tíma var ég að hitta strák. Hann hefur heyrt það einhversstaðar og talið sig ekki hafa neinn séns þá. Viku seinna frétti ég það á facebook að hann er kominn á fast með þessari stelpu sem reyndi að kyssa hann á ballinu en hann vildi ekki. Kannski er það vegna þess að hann vildi þann titil að eiga kærustu:/ frekar leim =/ en ég veit ekkert. Ég komst að því þessa helgi að ég er actually hrifin af honum. Ég er eiginlega bara rosalega hrifin af honum :$ Við eigum svo margt sameiginlegt. Vinkonur mínar segja að okkur hafi verið ætlað fyrir hvort annað. Ég sé svo eftir því að hafa ekki látið vaða og kysst hann þessa helgi en það hefði verið svo rangt útaf hinum stráknum sem ég var að hitta. Núna er ég búin að missa hann. Ég veit ekki hvað ég á að gera:( mig langar svo í hann. Ætti ég að berjast um hann? Á ég að segja honum frá því að ég sé hrifin af honum? =/ hvað á ég að gera? I need help ! I need some advice :'S