Ástin

Það er mikilvægt að muna hvað ástin er yndisleg. Ástin er undirstaða næstum alls ef ekki alls sem gott er í lífinu.
Að vera ástrík og elska sig og annað fólk, framtíðardrauma sína og áhugamál, dýr og bara allt sem er fallegt og gott tel ég vera það besta sem við
getum gert. Ástin styrkir okkur, byggir okkur upp, styður við okkur, nærir okkur, þroskar okkur, stuðlar að friði og öryggi, samvinnu, gleði
og kærleika. Ástin lætur okkur líka koma saman og deila og njóta lífsins með hvort öðru, hjálpa hvort öðru að vaxa, dafna og blómstra og þeim mun
ástríkari sem mannkynið er þeim mun hamingjusamari eru allir og öllum líður betur og hlýnar um hjartans rætur. Sjálfur tel ég ástina vera það
lang fallegasta og besta sem við eigum og erum. Ástin gerir endalaust gott fyrir okkur öll og gerir lífið dásamlegt.
Leitumst eftir að vera fullkomin ást alltaf í öllu. Ég elska þig.