jæja, okkur kærastann vantar uppástungur hvað hægt sé að gera svona í frístundum okkar, málið er að við erum orðin soldið föst í sama farinu og erum mjög oft bara eitthvað hangandi í tölvunni á kvöldin og gerum voða lítið og okkur langar að vita hvað þið pörin gera svona sem þarf ekki endilega að vera peningatengt eða allavega ekki dýrt x)

við höfum verið að fara í sund öðru hvoru og í bíó, horfa á mynd saman, höngum stundum með vinum okkar saman en annars er voðalítið annað sem okkur dettur í hug.