Nafnlaust.

Okei, ég er búin að vera með kærastanum mínum í 2 mánuði en ég kynntist honum fyrst fyrir svona 4 mánuðum. Þessir tveir mánuðir eru búnir að vera bestu mánuðir lífs míns og sambandið er búið að vera fullkomið, þangað til fyrir svona viku. Þá vorum við úti og stelpa sem að við þekkjum labbaði framhjá okkur og hann starði geðveikt á hana og hún á hann en ég bara lét það fara framhjá mér.
Svo tveim dögum seinna fórum við í partý hjá besta vin hans og hellingur af vinkonum mínum voru líka í þessu partýi, svo að ég fór bara til þeirra og var bara eitthvað aðeins með þeim. Svo þegar ég fór eitthvað fram þá sá ég að hann var að leiða þessa gellu sem að við sáum úti 2 dögum áður út, og ég spurði hann útí það en hann sagði að hann ætlaði bara að fylgja henni snöggvast heim vegna þess að hún væri svo blindfull.
Eftir það þá hefur hann voða sjaldan getað hitt mig og þegar við hittumst þá er hann alltaf svo vandræðalegur og eitthvað svoleiðis.

Vantar einhver ráð, gæti hann verið byrjaður að vera með þessari gellu eða hvað ?

Öll skítköst afþökkuð.
If you can make a girl laugh, you can make her do anything