Sælir hugarar. Ég orti ljóð um stelpu sem ég er hrifinn af, langar dálítið til að fá hlutlausa gagnrýni… hvað finnst ykkur?

Ef ég væri orðheppinn,
yrkja myndi fögur kvæði
fegurð þinni til heiðurs.

Augu þín himninum fegurri,
varir þínar sem rósrauðar rósir
Nefið og eyrun verkfræðiundur.
Eitt mesta listaverk Guðs.

Brosið blíða og ljósa hárið
verðmætara en öll gersemi heimsins.
Mestu skáld og listamenn
gætu aldrei endurskapað slíka veru.

Ef ég væri orðheppinn,
yrkja myndi fögur kvæði
fegurð þinni til heiðurs.