Sendi þetta inn fyrir notanda.

—————————-

Sælir kæru hugarar,
Bara svona smá vangavelta hjá mér. Málið var að ég
var með stelpu fyrir tvem og hálfu ári síðan,
ekkert svo langt samband neitt en svo slitnaði
uppúr því en við höfum verið vinir alveg síðan þá
og ekkert mál.
Viðurkenni það alveg að þetta er án efa
yndislegasta stelpan sem ég hef nokkurntíman verið
með og þegar ég pæli í stelpum núna þá hef ég hana
alltaf sem viðmið og finnst ekkert ganga að finna
stelpu sem er jafn góð og hún. En jæja síðan við
hættum saman er ég búinn að vera í tvem samböndum
og hún búin að vera í sambandi líka.
En já við hittumst alveg sem vinir og svoleiðis en
nú finnst mér vera orðin smá breyting á og jafnvel
bara breyting til góðs eða það er það sem ég veit
ekki. Nú er hún oft að spyrja “Ert þú ekkert að
pæla í stelpum núna og hitta og dúlla þér” Og ég
bara segi eins og er: Nei ekkert í gangi hjá mér
sem er alveg hárrétt og ég er ekkert að bulla með
það.
Þá segir hún einmitt á móti “Já sama hér bara
ekkert í gangi hjá mér”
Finnst hún vera að ítreka það svo rosalega við mig
að það sé ekkert að frétta af strákamálum hjá
henni að ég er bara að hugsa hvort hún sé eitthvað
lúmskt að gefa mér hint að hún sé jafnvel bara til
í mig aftur.
Ég bara þori ekki að gera neitt í þessu og ég veit
að ef hún væri að pæla í mér eitthvað þá myndi hún
öruglega ekki þora að gera neitt heldur í því nema
með hintum.

Þannig ég spyr ykkur stelpurnar, getur það verið
að hún sé að sýna mér lúmskt áhuga aftur með því
að svona spyrja hvort ég sé eitthvað að dúlla mér
með stelpum og þegar ég segi nei að þá segi hún að
það sé heldur ekkert að frétta hjá henni.

Ég nefninlega þori ekki að gera neitt í því að
spyrja hana eitthvað útí þetta.En ef hún myndi
gera það að fyrrabragði og segjast hreinlega elska
mig þá myndi ég þora að tala um þetta við hana og
myndi vera til í hana aftur.

Hún er nefninlega búin að spyrja að þessu tvisvar
á svona mánuði.