“Búmm Búmm!….Búmm Búmm!!!…Búmm Búmm…”

“Hvað var þetta?” hugsar hann með sér og pírir augun opin.
Smátt og smátt örvast skynfærin hvert af öðru.
Fyrst lyktin af hárinu hennar, sem liggur eins og foss lækjar niður eftir baki hennar,
ilmur sem veitir honum öryggi og ró.
Hann heyrir rólegan andadrátt, taktfastann og jafnan.
Hann sér fallega stelpu, sem liggur fyrir framan hann og sefur, samsíða honum.

Bringa hans og bak hennar snertast, hönd hans teygir sig yfir hana eins og skjöldur og spjót riddara, tilbúinn að slást við vonda drauma hennar.

“Búmm Búmm!….Búmm Búmm!!!…Búmm Búmm…”

Þarna kemur þetta aftur, hljóðið sem vakti hann frá værum svefni. Hann lítur í kringum sig en skilur ekkert hvaðan þetta kemur.
Hann lokar aftur augunum og hjúprar sig upp að henni aftur.
Finnur hitann af henni og finnur núna lítið bank í bringunni á sér, "Búmm Búmm!… Búmm Búmm!!!….Búmm Búmm….


….þetta voru hjörtu þeirra að slá í takt.