Vissi ekki alveg hvar þetta ætti að vera en allavegan..
Ég var með þessum strák og við vorum búin að vera saman í ca 2 ár þegar hann fer með 3 vinum sínum og vinkonum á Hróaskeldu. Það mikið stuð hjá þeim og svo þegar hann kemur heim þá spyr ég hann út í ferðina og allt í góðu. En svo stutt seinna þá fara koma myndir úr ferðinni inná feisið.. Ég fæ að fara spurningar um hvort þessi strákur og vinkona hans séu saman og þess háttar. Mér finnst þetta nátturulega ömurlegt og fer að spurja hann útí þetta en hann neitar öllu. Vinir hans sem voru með honum í ferðinni segja að þetta hafi verið mjög skrítið á milli þeirra og ég ætti bara að hætta að tala við hann . En og aftur spyr ég kæró útí þetta en hann neitar öllu og segist bara hafa verið svona mikið með henni af þvi að vinir hans hefðu verið annarstaðar og hún ein til staðar. Útaf þessu rifumst við mikið og hættum eiginlega saman.

Þetta gekk bara þannig að stundum tölum við ekkert saman svo kom tími sem við töluðum saman. En það endaði einhvern eigin alltaf á rifrildum útaf þessu.

Svo eitt skiptið kem ég heim til hans og ætla bara að kíkja í heimsókn þá labba ég bara inn og fer inní herbergi þá liggur hann og þessi stelpa saman uppi í rúmi. Ég náttúrulega fer alveg í rusl og hleyp út.
Annað skipti kem ég heim til hans þegar hann er í matarboði og er bara að sækja dót sem ég á heima hjá honum. ( það er alltaf opið heima hja honum) Labba inní herbergi þá sittur gellan bara inní herberginu hans í tölvunni. Ég spyr hana hvað hún sé að gera þarna og hún svarar bara einsog ekkert sé sjálfsagaðar að vera þarna.

Ég gæti sagt svona 5 önnur dæmi um þetta en ég bara skil ekki hvernig hann getur haldið svona áfram án þess að viðurkenna að það sé einhvað í gangi. Þegar gellan er hjá honum þá svara hann ekki í síman og fer svo seinna inná klósett til að hringja. Hann svoleiðis drullar yfir mig ef ég ætla að djamma eða fara einhvað en hann má allt. Ég hef gefið þessum gaur endalausa sjensa til að vera áfram vinir eða í sambandi. Hann eltist við mig um að vera vinir .
Allavegan hann segir en að það sé ekkert en ég veit ekki á ég að trúa honum og vera vinur hans eða bara gleyma honum?