Halló! Ég ætla að biðja ykkur um álit á einhverju sem brennur á mínum vörum.

Ég er einhleyp, og bara mjög sátt við það. Hinsvegar á ég á mikið af vinum sem eru í sambandi og búa jafnvel saman, og ég er mjög oft 3.hjólið eða 5.hjólið og stundum 7.hjólið í fólkshittingi. Og þannig er það bara, þó það sé kannski píínu vandræðalegt að vera boðið að fara ein með pari í bíó eða eitthvað, en mér finnst það samt allt í lagi!!

Fyrir svolitlu síðan fóru sumir vinir mínir farnir að tala við/um mig eins og að vera einhleyp sé einhver sjúkdómur eða fötlun!
Ég er t.d. oftar en ekki kynnt fyrir nýju fólk sem: “Danyin, hún er á LAUSU” …þetta er nefninlega svona smitsjúkdómur sjáið til…??

Í gær og í dag eru foreldrar mínir farnir að spurja út í mín ástarmál, hvort ég fari nú ekki að kynnast einhverjum, því nánast allar vinkonur mínar hafa einhvern, og alltaf með svona vorkunnartón. Ég fór að velta því fyrir mér, hvort fólki finnist þetta eitthvað óeðlilegt??

Getur fólk ekki bara skilið að ég er 100% sátt við mitt líf eins og það er? …er búin að segja þeim það

Kannski ætti ég að minna á að ég er bara 19 ára, mjög upptekin manneskja. (fullur skóli, 2 vinnur (skipulegg alls konar viðburði í annarri vinnunni með tilh fundum og neyðarútköllum), ferðast mikið, og er mjög virk félagslífi í skóla og ég er út um allt…) Ég er að lifa lífinu áður en ég bind mig eitthvað frekar og gifti mig og eignast börn og svo frv…

Ég var í sambandi með gaur sem bjó hjá mér og hann hélt mér í fangelsi sektarkenndar og sjálfsvorkunnar í ríflega eitt og hálft ár. En það er ca eitt og hálft ár síðan ég sleit þessu og hann er farinn sína leið og ég mína.
Eftir hann finnst foreldrum mínum að ég sé svo EIN, og VERÐI að hafa einhvern því flestar vinkonur mínar hafa einhvern! (tek fram að ég bjó úti í ár og sleit þessu aðeins áður en ég flutti, svo foreldrum mínir finnst ég ennþá eiga vera DanYin+1, en ég kom heim fyrir nokkrum mánuðum síðan)

Hvað segið þið um þennan stimpil, hafið þið lent í þessu, og ef svo er, hvernig segið þið fólkinu að leyfa manni að vera í friði?
-Pláneta.