Jæjja þá er draumastelpan alveg að fara að koma heim aftur hehe.. hún er í námi úti og kemur heim milli jól og nýárs og viti menn hún fer í sama skóla og ég :P
þannig var það að í sumar hittumst við í fyrsta skiptið á einhverju djammi og hún addar manni svo á face eftir það vorum við alltaf að rekast á hvort annað niðri í bæ áttum líka nokkra sameiginlega vini, en svo fór hún út og við héldum samt áfram að spjalla saman og ég bara get alls ekki hætt að hugsa um hana. svo er bara spurningin hvernig mynduð þið strákar höndla þetta?? hvað mynduð þið gera fyrsta skóladaginn osfr. og hvernig tek ég fyrsta skrefið:) Gaman að vita álit endilega svara