Ég veit að þetta er hundraðasti svona þráðurinn en…

Ég á vin sem ég er búin að vera hrifin af frekar lengi. Ég veit ekki hvort hann veit það eða hvort honum finnist það sama um mig, en ég hef mínar grunsemdir um það.

Vandamálið er að hann er ótrúlega lokaður og sérstaklega fyrir svona hlutum. Samt tala ég mjög mikið við hann, umgengst hann eiginlega bara fullt og ekkert mál.
Ég er bara sérstaklega hrædd við höfnun, því ef ég geri eitthvað og hann ýtir mér frá þá þarf ég samt að umgangast hann daglega og það væri vandræðalegt.

Ég er bara að verða brjáluð á að hann sýni mér svo mismunandi mikinn áhuga, en gerir svo ekkert. Ég er líka fáránlega feimin svo það er ekkert að fara að gerast…

Æhhh… Ef þið hafið einhver ráð fyrir feimið fólk þá er það alveg vel þegið. Sérstaklega ef það inniheldur ekki að drekka sig fullan