Þetta á kannski ekki beint heima á þessu áhugamáli, en ég held samtsemáður að hér fái ég hvað best svör.

Núna ætla ég ekki bara að mæta sem fullkominn herramaður í búningapartí, heldur ætla ég að act the part, sem verður eflaust meira og meira tjallends eftir því sem áfengið tekur völdin. Svo endilega sjáið til hvort þið getið bætt við lista sem ég hef safnað saman frá nokkrum vinkonum mínum.

Kurteisi, sjálfstraust, opna dyr fyrir stúlkum og ekki heilsa þeim með handabandi heldur kyssa hendur þeirra. Þessi listi, þrátt fyrir að vera frekar stuttur, gefur mér alveg nokkuð góða hugmynd, sem maður hafði náttúrulega fyrir, um hvernig ég ætla að hegða mér.

Það sakar hinsvegar aldrei að fá aukahugmyndir og því hef ég nú búið þennan þráð til.