Þannig er mál með vexti að ég þekki eina stelpu,
mjög falleg og skemmtileg, sem ég vil kynnast
betur. Við vorum saman í skóla og töluðum nokkrum
sinnum saman og svona. En hún er einu ári yngri en
ég þannig ég hef ekki talað við hana í ár, hún er
semsagt að fara úr 10nda bekk og í menntaskóla.
Það hefur aldrei verið eitthvað vandamál fyrir mig
að spjalla við stelpur NEMA að byrja bara að tala
við þær á msn uppúr þurru. Mér finnst það svo
vandræðalegt af því það er svo langt síðan við
höfum hist. Ég var að spá í hvort þið væruð með
einhverjar hugmyndir um hvernig ég á að byrja að
tala við hana (er með hana á msn og facebook) án
þess að líta út eins og einhver perri og/eða
geðsjúklingur. :)

Með fyrirfram þakkir.
Sjóðbullandi Sexy! Er dom í svefnherbergi Vefstjóra.