Ég er svosem ekki að biðja um nein svör heldur bara deila reynslu minni af uppáþrengjandi kærustu.

Fyrir svolitlu síðan þá var ég með stelpu, hún var ekkert smá uppáþrengjandi. Vildi fara með mér ALLT jafnvel þó hún vissi alveg að hún hefði ekkert gaman að því sem ég var að fara að gera.
Kom oft í vinnuna til mín og hékk yfir mér marga klukkutíma á dag og röflaði meira segja stundum í því að ég gæti ekki verið að spjalla við sig í vinnunni af því ég var upptekinn við að sinna vinnuni minni, hún hélt að hún gæti bara komið í vinnuna til mín, og blaðrað við mig í marga klukkutíma án þess að ég þyrfti svo mikið sem að sinna vinnuni aðeins.
Hún var að biðja mig að blocka á bestu vini mína sem ég hef þekkt síðan ég var smápolli.
Hún vildi bara að ég væri með sér og ég mátti sko ekki fara í bíó bara með félögunum, annaðhvort átti ég að sleppa því eða að hún kæmi með líka.
Hún var orðin svo uppáþrengjandi um tíma að ég stundum feikaði það að ég væri kominn með hita eða væri hugsanlega að fá flensu eða eitthvað bara til þess að ég gæti farið heim til mín og farið út að borða með félögunum mínum og gert eitthvað bara með þeim án þess að hún kæmi með allt. Fékk ekkert speis, nákvæmlega ekki neitt.
Mér leið eins og það væri verið að toga mig lengra og lengra niður á hafsbotn og það var alltaf erfiðara að anda með hverjum deginum, ég var bókstaflega að drukkna í þessari stelpu. Fékk engan tíma fyrir mig. Ekki einusinni hálftíma göngutúr úti með ipod í eyrunum.

Vissulega endaði það þannig að ég dömpaði henni og ég er single í dag og eftir svona samband þá hefur maður bara lítinn áhuga á því að reyna að koma sér í annað samband strax þegar maður sér hvað það eru til mikið af klikkuðum stelpum.
En ég alhæfi ekki neitt elsku stelpur mínar, þið eruð flestar alveg yndislegar en svona sauðir inná milli.

Þessi sanna dæmisaga kennir okkur öllum það að maður verður að gefa maka sínum smá svigrúm.
Annars bara endar það í sambandsslitum.

Ég sé EKKERT eftir þessari stelpu í dag, feginn að vera laus við hana og átti ekki í nokkrum einustu erfiðleikum með það að dömpa henni, mér meira segja hlakkaði til þess.

Það er betra að vera single heldur en að vera í sambandi þar sem maður er alveg kjæfður.
Cinemeccanica