Ég er hrifinn af stelpu og við erum búin að vera vinir dáldið lengi og ég held að hún sé líka hrifin af mér, en er ekki viss og langar að komast að því ÁN þess að spyrja hana beint og helst án þess að gera mig að miklu fífli. Undanfarnar vikur erum við búin að vera að hittast meir og meir og nokkrir vinir okkar halda að við séum saman af því að þeir vita flestir að ég hef verið hrifinn af henni næstum alveg síðan við kynntumst.

Þurfti bara að koma þessu frá mér og solz og fyndist frábært að fá einhver ráð eða eitthvað.

btw, ég er 16 ára