Jæja, fólk. Ein létt spurning handa ykkur.

Er eitthvað sem ykkur finnst “sætt” hjá kyninu sem þið laðist að, sem fæstir aðrir (sem þið þekkið allavega) deila? Einhverjir kækir, eitthvað í útlitinu, bara hvað sem er (kannski pínulíkt nýlegum þræði á tilverunni, en það er enginn að svara þessari spurningu þar hvorteðer). Endilega deilið því, en plís, ekki fara að reyna við fólk með því að segja “omg, þetta er svo ég :D:D:D”. Farið bara alla leið og biðjið um msn í pm eða eitthvað, svona off this thread.

Og svona bara fyrst ég er in the giving mood, gefa ykkur aðra spurningu, aðeins forvitnilegri kannski. Hafið þið kysst manneskju sem þið kynntust á huga, nördarnir ykkar?