Þannig er mál með vexti að ég fór að hitta strák um daginn. Ég kynntist honum eiginlega í gegnum facebook, en vissi samt alltaf hver hann var fyrir svo hann var ekki alveg bláókunnugur.

Allavega, hann sótti mig og við fórum til hans, og duttum í þetta týpíska kúr og voða gaman.. Hann ætlaði að reyna að fara inná mig, en ég vildi það ekki.
Ég var nú bara að hitta hann í fyrsta sinn og hann sagðist alveg skilja það.
Síðan skutlaði hann mér heim og þá fattaði ég að ég hafði gleymt peysunni minni hjá honum.

Ég kom heim og fór á MSN og sagði við hann eitthvað eins og: “Heyrðu ég gleymdi peysunni minni hjá þér..” og þá sagði hann: “Ókei, hvað á ég að gera í því?”

Mér brá.. þetta kom út eins og eitthvað mega diss og ég varð frekar pirruð, sérstaklega þar sem ég hélt að allt hefði gengið vel.
Svo næstu daga talaði hann ekkert við mig og ég var svona frekar ringluð.

Svo eftir svona 5 daga fór ég til hans að ná í peysuna og þá sagði ég bara eitthvað:
“Já ókei.. ætlaðiru ekkert að tala við mig aftur eða?” og hann var alveg eitt stórt spurningarmerki og sagði bara: “Ha?” eins og þetta væri einhver spurning út í bláinn og að hann vissi ekkert hvað ég væri að tala um.
Ég rauk í burtu, ég var mjög pirruð út í hann.

Seinna um kvöldið var ég á MSN og þá fór hann eitthvað að segja að honum hefði langað til þess að hringja í mig og eitthvað blabla, fór að spyrja hvað ég hefði verið að gera og þannig (hann hefur greinilega skammast sín fyrir þetta nokkra daga huns, haha).

Svo eftir svona 2 daga talaði hann við mig og við ákváðum að hittast.
Hann sótti mig og við rúntuðum í svona 1-2 tíma, spjölluðum mikið og það var bara mjög fínt.
Svo spurði hann mig hvort við ættum að fara til hans og ég sagði já og við fórum þangað.
Við fórum að horfa á mynd og síðan fórum við að kyssast og svo fór það aaaðeins lengra.

Við framkvæmdum munnmök á hvort öðru og enduðum í sturtu saman (vil bæta við að þetta er í fyrsta sinn sem ég geng svona langt með strák).

Svo fór ég heim og var svona frekar sjokkeruð, skiljanlegt. Svo liðu dagarnir og hann talaði ekkert við mig og ég hélt að þetta væri bara svona eins og nokkrum dögum áður.

Hann fór með vinum sínum í einhverja fylleríisferð í nokkra daga, svo ég bjóst svo sem ekki við símtali eða neinu slíku á meðan.
Síðan kom hann heim og ekkert heyrðist frá honum, þá var liðin vika.

Mér fannst ég hafa verið notuð, og ég trúði ekki að ég hafði verið svona blind.
Enn einn gaurinn sem reynir að nota mig og ég hef alltaf verið frekar skynsöm.
Trúi ekki að ég hafi treyst honum, svona miðað við að ég var bara búin að hitta hann tvisvar eftir að ég náði í peysuna.

Svo fór ég að vinna nokkrum dögum síðar og ég sendi honum SMS um að ég væri að vinna og hann gæti kíkt ef hann vildi. Hann svaraði ekki og ég bara: já ókei, hann vill ekki tala við mig, frábært.

Svo allt í einu mætir hann, með vin sinn.
Hann var mjög vandræðalegur og sagði ekki mikið.
Vinur hans fór að spjalla við mig og ég var svooo vandræðaleg.
Vissi ekki ekkert hvað ég átti að halda, hann var ekki búinn að tala við mig í marga daga og svo mætti hann bara allt í einu án þess að láta vita af sér með vini sínum.

Minn maður spurði vin sinn hvort hann ætlaði að fá sér eitthvað að borða, og þá sagði vinur hans: “Nei, ég kom nú bara með þér til að tékka á gellunni”.

Þeir voru ekki lengi og fóru svo. Þetta var síðasta föstudag.

Núna hef ég ekkert heyrt í honum og ég skil ekki, að ef hann ætlar ekkert að tala við mig, afhverju í andskotanum hann var að koma til mín í vinnuna.

Takk kærlega fyrir að hafa lesið þetta, ég veit að einhver ykkar hafa örugglega lent í einhverju svipuðu og ég kynni að meta ráð, skoðanair og þið gaurar gætuð sagt mér hvað hann sé að pæla.

Ég er mjög ringluð núna.