Jæja, ég veit ekki hvort þetta henti hér þar sem þetta passar kannski ekki alveg undir ‘rómantík’ en ég veit ekki um neinn annan stað þar sem þetta gæti passað, svooooo so be it . Allavega, í gær var ég að tala við ágæta vinkonu mína á msn, og hún spurði mig hvað ég myndi gera ef ég lenti í ákveðnum sporum, og þar sem ég var ekki alveg viss ákvað ég að sjá hvað þið mynduð segja! (:
Svo, endilega lesið þetta og segið mér hvað þið mynduð gera:


Þú ert úti í útlöndum með skólanum þínum og það eru bara stelpur í hópnum, en bara svona 8 eða 9. Þið eruð í partýi með strákum sem þið gistið hjá og fleiri sem eru í bekknum þeirra og svona og þú ert sú eina sem er ekki að drekka. Svo ertu alveg að fara og þetta er síðasta kvöldið þar sem þið eruð þarna og þú kyssir einn strákinn, og það er fyrsti kossinn þinn (þú ert 91 mdl). Svo ferðu, kveður alla, og ein íslensk stelpa er eftir í partýinu með 7 eða 8 strákum. Seinna um kvöldið kyssir hún sama strákinn og þú kysstir, og ekki bara einusinni heldur allt kvöldið. Hún vissi líka alveg að þetta væri fyrsti kossinn þinn þótt hún væri frekar full. Daginn eftir ertu alltaf að tala um þetta, og stelpan sem kyssti strákinn líka minnist samt ekkert á það að hún hafi líka kysst hann. Hvað myndiru gera ef þú fyndir út að hún hefði líka kysst hann, fyrst þetta var fyrsti kossinn þinn og allt það?