Ég var mikið hrifinn af stelpu fyrir stuttu og við vorum aðeins að dúlla okkur saman. Þetta var samt ekki alveg að ganga og við ákváðum að vera bara vinir. Ég var samt enn þá mikið hrifin af henni og ákvað að loka nokkurnvegin á hana til að komast yfir hana og hef ekki talað við hana núna í nokkrar vikur. Ég var næstum alveg komin yfir hana og farinn að pæla í öðrum stelpum þar til í nótt. Þá dreymdi mig fáránlega raunverulegan draum um stelpuna og að við kysstumst og sættumst og allt í gúddí. Frá því að ég vaknaði í morgun hef ég ekki getað hætt að hugsa um hana.

Hefur eitthver annar lent í þessu? þetta er það síðasta sem ég þurfti núna í prófunum :