Ókei sko..
Þannig er staðan að ég þurfti virkilega að manna mig í það að skrifa þennan kork þarsem að það eru of margir sem þekkja mig hérna og eitthvað rusl.
Og ég er hrædd. o.o

En..
*Vælbyrjar*

Þannig er það að ég er hrifin af góðum vini mínum sem ég veit að vill mig ekkert.
Þessi strákur hefur verið næstum því með fyrrverandi bestu vinkonu minni, semsagt “dúll”.
Og ekki halda að ég eigi að taka hana fram yfir hann eða eitthvað því hún hefur farið frekar illa með mig..
Eða semsagt notað mig til að kynnast vinum minum, byrjar með þeim og hættir með þeim þannig þeir vilja eiginlega ekki hitta mig lengur.
Og síðan er hún lygari og laug að frekar stórum hlut í nokkra mánuði..

Besti vinur minn er hrifinn af mér en ég þori ekki að gera neitt því ég veit að ég særi hann því hann er of góður fyrir mig og ég er ekki falleg né eitthvað spes stelpa og stöff..


Ég er ennþá yfir mig hrifin af fyrrverandi kærustu minni og allt í fokki þar því hún vill ekki samband en ég vil það.

Mér hefur aldrei gengið vel í samböndum og alltaf gengið illa þarsem ég enda á því að panikka og hætta með manneskjuni eða það hefur verið haldið framhjá mér og sært mig og svo framvegis.
Þannig ég er ekki með sérlega góða sögu bakvið mig og æji.
Vá.

Væri til í álit frá utanaðkomandi aðilla…

Það er allt í fokki.
*Vælendar*