Vissi ekki alveg hvar þetta á heima en…
vantar kannski meira stelpuálit, en spurningin/pælingin er sú; yrðir þú sár ef að besta vinkona þín, þá meina ég að þið séuð búnar að vera bestu vinkonur í meira en 10 ár,
væri einn daginn búinn að lækka þig úr 1. sæti í topfriends og niður í annað, og í 1. sæti væri kominn svokallaður kærastinn hennar sem er náungi sem hún hefur varla þekkt í mánuð og er búin að vera með í c.a. tvær vikur?
Sérstaklega þar sem þú tókst aldrei hana úr 1. sæti þótt þú sért búin að vera á föstu miklu lengur en hún.
Topfriends er asnalegt, drama og vesen, en já?
Álit?
Btw. líka þegar að þér finnst kærastinn hennar ÓENDANLEGA pirrandi og leiðinleg manneskja og flestir vinir ykkar hata hann.

Bætt við 12. apríl 2009 - 01:35
Ahahhaha. Vil taka það fram að ég var ógeðslega bitur og í blóðsykursfalli þegar ég skrifaði þetta.