Allavega,
vinkona mín er hálfgert að dúlla sér með gaur.
Kynntist honum þegar hann var að dúlla sér með annarri vinkonu okkar, en núna sýnir hann henni mikinn áhuga.
Þau hafa hittist nokkrum sinnum og svo kyssti hann hana um daginn.
Svo kom á daginn að hann er frekar mikið skyldur henni..
og þá sprakk ég úr hlátri XD
Mamma hennar og hann eiga sömu langömmu,
semsagt er langamma/langafi hennar bróðir/systir ömmu/afa hans. Pínu flókið að skrifa það, en mjög skylt þegar maður teiknar það upp.
Ouch.
Álit? Of skylt?

Bætt við 28. mars 2009 - 00:04
Eftir nánari hugsanir og lesningu commentana, þá er þetta kannski alls ekki svo slæmt eftir allt saman.
Þarna sparast bæði jóla- og afmælisgjafir og það þarf eigilega bara eitt ættarmót :D. oj.