Ég er búinn að vera að tala við stelpu alveg geðveikt lengi, svona aðallega á msn en við höfum samt alveg hisst og erum í sama skóla og svona (er 18 og hún 16 ef það skiptir einhverju).
Allavega og svo var ég að tala við hana á fimmtudaginn og bara geðveikt hressar samræður og allt í góðu en svo bara um helgina hefur hún ekkert viljað tala við mig. blockaði mig á MSN og ég sendi henni síðan eitt sms í gærkvöldi og spurði hvað hún væri að brasa og hún svaraði því ekki.
Þannig að hvað get ég gert án þess að fara að vera geðveikt uppáþrengjandi og pirrandi?
já og líka náttúrulega afhverju er hún að þessu allt í einu núna, einhver getur útskýrt það þá væri það vel þegið