æji já,, hérna ég þarf eiginlega að spurja að einu :/

Ég fatta ekki alveg afhverju, en þetta er núna búið að gerast tvisvar í röð..
Búin að þekkja strák,, verðum mjög náin, mjög góðir vinir, eitt kvöldið kyssir hann mig, og erum bara þannig allt kvöldið, daginn eftir farið til vinar hans og hann með, kyssumst um kvöldið, svo daginn eftir “þú ert besta vinkona mín og munt alltaf vera það” og við tölum aldrei saman lengur :')
Sá næsti… Þekkti hann þgar ég var lítil, hann flutti, svo hittumst við aftur fyrir svolitlu síðan(þá voru nokkur ár síðan ég sá hann síðast) , verðum vinir aftur, eitt kvöldið kyssir hann mig, kyssumst allt kvöldið, hef ekki heyrt frá honum síðan… svarar ekki smsum (samt bara tveir dagar síðan, og er reydnar bara búin að senda tvö) en efast um að síminn hans sé batteríislaus…

Æji ég eiginlega veit ekki hvað ég á að gera… Afhverju gera strákar þetta… ég er svo áttavilt núna að ég veit ekki hvernig ég á að vera.. og þetta er óþæginlegt…