Sendi þetta inn nafnlaust fyrir annan notanda :)


Ég var búin að vera með þessum strák í um það bil eitt og hálft ár, og þá hélt hann framhjá mér og byrjaði með þessari stelpu sem hann hélt framhjá mér með.
Svo núna fyrir stuttu þá hættu þau saman og hann er byrjaður að reyna við mig aftur á fullu.. og ég verð að viðurkenna það að ég elska hann ennþá og veit ekkert hvað ég á að gera.
Ég er ógeðslega sár út í hann, en hann er svona strákur sem nær alltaf að heilla mann upp úr skónum með því að tala og lofa öllu fögru..
Var að spá í hvort einhver hérna gæti hjálpað mér og sagt sitt álit á þessu.
Ofurhugi og ofurmamma