Ok það er stelpa sem er með mér í skóla og ég hef þekkt hana rosa lengi(4ár) Ég er rosa hrifin af henni en veit ekki hvað hún segir.

Ég ætlaði að reyna tala við hana í skólanum en bara fékk mig ekki til þess.

Svo sá ég að hún signaði sig inn á msn og svona var chattið.

*******.:* said:
jm .:")

Binni* said:
En heyrðu ég þarf að segja þér eitt á morgun

*******.:* said:
nei núna .

Binni* said:
núna? mér sfinnst soldið óþægilegt að segja þetta á msn en hérna jújú get alveg sagt það

*****.:* said:
oki

Binni* said:
Hérna já sko ég er búinn að vera hugsa soldið í soldin tíma og ég er ekkert góður í svona (hef litla reynslu ) já.. semsagt það er eitthvað við þig sem fær mig til að líða vel… réttara sagt þá er ég hrifin af þér og langar að vera kærastinn þinn og gera þig hamingju sama… en ég veit ekki hvernig þú lítur á mig.. hvort þú hatir mig eins og sumir gera, eða þá að þú viljir þetta ekki og það er ok ég meina lífið heldur áfram

Binni* said:
:$

******.:* said:
heyrðu tala við þig seinna .

Binni* said:
ok

Ég meina mér þykir svo vænt um þessa stelpu þið vitið örugglega flest hvernig svona tilfinning er…..

Mér þótti vænt um þig fyrir viku,
mér þótti vænt um þig í gær,
mér þykir vænt um þig núna,
en hvar ertu?

Ég spyr sjálfan mig stundum aðþví
hvort mér þyki í raun vænt um þig
og svarið er alltaf eins…….
Já….

Mér langar að halda utan um þig
og segja að ég elski þig,
því ég meina það.

Mér langar að kúra hjá þér
og segja að ég elski þig,
því ég meina það.

Mér langar að horfa í augu þín
og segja að ég elski þig,
því ég meina það.

Mér langar að halda í hendina á þér
og segja að ég elski þig,
því ég meina það.

Mér langar að kissa þig
og segja að ég elski þig,
því ég meina það.

Mér langar að gera þig hamingjusama
og segja að ég elski þig,
því ég meina það.

En ég þori bara ekki… ég veit ekki hvaða svar ég fæ??

Mér langar svo að giftast þér í framtíðinni
og halda áfram að segja að ég elski þig,
því ég mun meina það.

En hvaða svar fæ ég?

Þegar ég er nálægt þér líður mér vel… meira að segja frábærlega því að
mér þykir vænt um ÞIG og engan annan.

Ég elska þig(L)



Hvað á ég að segja næst þegar ég hitti hana?? mér finnst ég allveg hafa klúðrað þessu…..

Mér líður illa en samt svo vel hvað get ég gert?

Ætli hún sé hrifin af mér?

Takk fyrir að hafa nennt að lesa þetta:D

Öll skítakomment þökkuð;D er vanur maður a' fá svoleiðis:D