Ok, ég er með smá “vandamál”…

Eins og einhverjir hafa lesið frá mér, þá svaf ég hjá vini bróður míns í fyrra, ég er oft búin að senda honum sms á daginn og kvöldin en aldrei á óskikkalegum tíma ,hann svarar reyndar virkilega sjaldan afþví hann á aldrei inneign, (ég skil ekki hvernig það er hægt:S).

En já hann átti afmæli á föstudaginn og ég sendi honum hamingjuóskir í smsi fékk ekkert til baka en spáði ekkert í því ég vissi að hann hafði fengið það…

Svo um kvöldið þegar ég kem heim úr vinnunni er hann útí skúr með bræðrum mínum, pabba og örðum vini bróðurs míns og hans í póker, ég kem inn og segi eitthvað “þú átt ekki afmæli lengur:P” og hann bara “hey, já takk maður, varst þú að senda mér sms í dag?” og bara rúllaði augunum og beið eftir að þeir væru búnir afþví ég átti að skutla þeim heim.

Ég beið úti í bílnum hans bróður míns og hann sest afturí og bróðir minn frammí, þeir eru allir á eyrunum.

Ég keyri inn í hafnarfjörð og bróðir minn og hinn vinurinn fara að rífast útaf einhverju sem gerðist fyrir 6 vikum og þeir fara út úr bílnum til að útkljá þetta og hann (sá sem ég er að tala um) sest frammí, við hlustum á tónlist og djókum með hvað bróðir minn og vinur hans væru heimskir að vera ennþá að rífast um þetta, svo fáum við moment og erum bara allt í einu starandi í augun á hvort öðru og höllumst aðeins að hvort öðru eins og við værum að fara að kyssast en þá sest bróðir minn inn í bílinn. Ég náttúrulega roðna til fjandans og við segjum varla orð á leiðinni heim til hans, svo fer hann út úr bílnum blikkar mig og segir takk fyrir farið.

Svo seinna um kvöldið í kringum svona 2-3 fæ ég sms af ja.is sem í stendur “hringdu í mig eða sendu ess emm ess” en það var ekkert nafn eða númer sem ég gæti sent í svo ég pældi bara ekekrt mikið í þessu en hugsaði samt smá með mér hvort þetta væri hann. svo fæ ég annað sms “sry ég er bara soldid fuglur” þá var ég pottþétt á því að þetta væri hann en ég þorði samt ekki að hringja:/ .

Kvöldið eftir kemur hann heim til mín í póker, það voru einhverjir 15 aðrir gaurar þarna og ég nennti ekki að vera þarna en ég náði honum einum og spurði hann hvort að hann hefði sent mér þessi sms, en þá labbaði einhver framhjá og hann sagði nei:/.

Og blah ég geri hluti og fer bara inn í herbergið mitt með vini mínum og við dettum pínu í það og sofnum í faðmlögum. Svo vakna ég klukkan 6:30 við símann, þá er einhvað heimasímanúmer sem birtist á skjánum. ég fer á ja.is til að kíkja hver þetta væri og þetta var heima hjá honum. svo hringdi hann 6 sinnum í viðbót og vinur minn vaknar svo ég þori ekkert að svara afþví vinur minn verður eitthvað abbó ef ég tala við aðra karlmenn, svo ég er pinu smeik við það að hafa misst sénsinn á honum eða hvort ég eigi að hringja í hann bara og athuga hvort hann hefði bara verið graður þá eða hvort hann vantaði eitthvað annað frá mér *-)


Ég veit samt ekki alveg tilganginn með korkinum en mig vantaði bara að losna við þetta.. Ég er búin að vera einangruð heima með gubbupest svo ég get engum sagt frá þessu:/ og þetta er búið að vera að naga mig svolítið mikið.

Ef þið náðuð hingað þá takk fyrir að lesa:P