Halló, ég er með smá vandamál sem ég veit ekki einu sinni sjálfur hvað er.

Málið er að ég og stelpa sem ég er með erum búin að vera saman í 3vikur.Ég kynntist henni gegnum netið og vorum búin að spjalla saman í dágóðan tíma þegar við ákváðum að hitast. Hún bauð mér heim til sín í video.Við kúrðum yfir mynd og allt gek vel eydi nótuni hjá henni. Hef reyndar ekki farið síðan hehe.Við erum búin að vera mjög hamingjusöm þessar 3vikur þangað til fyrir nokkrum dögum. Hún kom heim úr vinnuni mjög pirruð (hún vinnur á leikskóla). Ég spurði hvort allt væri lagi og hún sagðist bara vera pirruð og ekkert meir. Nú eru liðnir 3 dagar síðan þetta var. Hún hefur látið eins og ég sé ekki til vil frekar kúra koddann sinn þegar við förum upp í rúm og einu skiptin sem hún virðist hafa einkvern áhuga á mér er við erum að já hafa mök. Veit ekki hvað ég gerði rangt til að fá svona skítamóral frá henni. Þegar ég spyr hana hvort sé einkvað að segir hún bara “nei allt í góður afhverju æti einkvað vera að?” Kannski er þetta bara ég, kannski er þetta bara aðþví að við fórum hratt að stað. En eit er vist sama hvað ég gerði rangt þá langar mig að vita hvað er að en get það ekki þegar hún vil ekkert segja. Er á þerri skoðun að hún sé bara með mér til að vera með mér ef þið skiljið. Vil ekki vera ein eða hvað. Þetta er mjög ólíkt henni allavega og ég fæ ekki einu sinni koss nema biðja um hann eða taka til skara skríða sjálfur. Hún var yfir leit fyrri til að kyssa mig,vildi alltaf kúra og var alltaf einu skrefi á undan mér. Mér liður mjög illa yfir þessu og spurning hvað maður á að gera.

HJÁLP!!! ef einkver hefur svör?
stoltur golden retriever eigandi!