Þar sem að kærastan og ég eigum mánaðar afmæli á föstudaginn þá langaði mér að bjóða henni til mín í mat , sem að ég mun elda , en vandamálið er … hvað á ég að elda?

Henni er svona nokkuð sama og mér er allveg sama líka en samt ekki , ég vil hafa þetta auðvellt, gott og ekki of fancy en samt svona frekar flott.

Ég kann allveg að elda og þannig og svo getur móðir mín alltaf hjálpað.

Bætt við 16. janúar 2009 - 23:38
ahh , þetta kvöld er nú búið , ég hafði þetta einfallt með lasagne sem mamma gerði og hún reyndar át með okkur , svo fórum við bara inn að horfa á the dark knight , allveg fínt kvöld :)