jæja ég er búinn að vera grátandi í allann dag og hér er ástæðan….stelpan sem að ég er hrifinn af og er líka mjög góður vinur minn er að fara að flytja langt í burtu frá mér og er ég mjög leiður og pirraður og í raunini með brostið hjarta, en til að gera þetta allt saman helmingi verra þá sagði ég henni hvernig mér liði í garð hennar og svo nokkrum klukkustundum síðar sagði hún mér að hún væri að flytja og ég náttúrulega brotnaði niður. og þetta er með því versta sem að ég hef lent í:/ því að þessi stelpa er mér mjög sérstök og er í raunini eina stelpan sem að ég hef verið hrifinn af of svo er hún að flytja og er ekki víst að ég sjái hana nokkurtíman aftur… getur einhver sagt mér hvort að þetta muni lagast:/ mér líður eins ég sé að deyja og plís ekki koma með skítaköst:/