Jæja er í eitthverju veseni með stelpu, þarf helst stelpu til að svara þessu en strákar mega alveg segja sína punkta.

Málið er að ég er að hitta stelpu nuna sem ég hitti fyrst í feb og var með henni í 3mánuði, hún hætti svo með mér og ég varð soldið leiður eftir það, svo yfir sumarið fór ég út um allt og hitti allskonar stelpur og svona , svo gerist það í ágúst að ég fer í ferð til útlanda og hitti þessa stelpu þar, það fyrsta sem ég geri er náttúrulega bara að heilsa henni og halda áfram því sem ég var að gera og ætla ekki að láta hana fara að breyta neinu. Ekkert mál með það þangatil á 4 kvöldi þá hitti ég hana á bar og fer að tala við hana og fatta fljótlega að hun sé að reyna við mig og við endum með að fara heim saman og hittast svo öll næstu kvöld þangatil að við komum heim og á þessum tíma höfðum við talað saman og ég ákvað að fyrigefa henni og gefa henni séns.

Þegar við komum heim þá segjir hun að hun sé ekki viss hvað hun vill, og ég þá verð frekar fúll og segji henni hverju ég fórnaði fyrir hana og finnst þetta vera fáránlegt. Svo næstu daga ákveður hún sig og við byrjum saman og hun verður voða hrifin af mér og öfugt. Þanga til nuna síðustu daga hefur hun sagt að við séum að fara of hratt í þetta, og sé farin að líða eitthvað skrítnilega. Persónu lega held ég bara að hún sé eitthvað stressuð yfir þessu og prófunum og svo er svo margt í gangi í lífi hennar akkurat nuna.

En þetta er eina stelpan sem hefur virkilega fengið mig til að hlæja og ég hef aldrei kinnst stelpu sem er lík henni á nokkurn háttog ég er mjög hrifin af henni, og hun af mér. Planið var að fara á eitthvað mega deit nuna um helgina og sjá hvað gerist en annars þá gefst ég upp.

Spurningin er, hvað geri ég í þessari stöðu? hvað lætur hana missa áhugan? ég vill helst halda sambandinu vegnaþess ég er buin með rbb tímabilið og er orðinn þreyttur á því og náttúrulega vill vera með þessari stelpu.

Afsakið fyrir stafsetningar villurnar og ef að pósturinn sé eitthvað óskiljanlegur.