Smásaga hérna,
Sko einn félagi minn er búin að vera hrifinn af stelpu í nokkur ár og í raun er þetta æskuvinkona hanns (síðan á leikskóla)

Og já það voru einskonar endurfundir fyrir nokkrum árum þar sem þau hittust aftur bara og höfðu ekki hist síðan í leikskóla. Nema það svo varð þessi félagi minn hrifinn af henni og hún aldeilis búin að leika sér með hann síðan þá. Hún byrjaði með einhverjum öðrum gaur og virtist svaka hamingjusöm félaga mínum til mikilla gremju. En þau voru alltaf að hittast og svoleiðis sem vinir bara en hann náttúrlega alltaf hrikalega hrifinn af henni. Nema svo hættir þessi stelpa og þessi gaur saman eftir allaveganna árs samband og þá fór hún auðvitað að tala um við hann og svoleiðis og þau voru að spjalla heilmikið saman og hann auðvitða hélt að nú væri þetta sko í höfn að nú væru þau að fara að byrja saman nema auðvitað svo byjar hún bara með einhverjum öðrum gaur og félagi minn þá fór að hugsa sig um “já hún er kannski bara eitthvað að leika sér að mér hlítur að vera”

Jæja nei þetta er sko ekki búið, svo kom auðvitað að því að hún hætti með þessum gaur og þá fór hún strax og gisti hjá þessum félaga mínum og hann alveg já ok nú er þetta on. Og mér skilst já að þau hafi meira segja næstum gengið alla leið. Og hún fór að tala um við hann hvað þessi gaur hafi verið mikill háflviti og fífl og allt eftir því og sagðist hata hann og ekki vilja sjá hann aftur. Jæja þá bara hugsaði félagi minn “ok nú erum við byrjuð saman”
Jæja helgina eftir þetta lenti hann nú bara í því að rekast á þessa stelpu í smárabíó og þá var hún aftur með þessum gaur og virtist virkileg hamingjusöm og ánægð með lífið, held samt að hún hafi ekki séð félaga minn.
Þá hugsaði félagi minn, ok ég nenni þessu ekki.. nú blocka ég á þessa manneskju alveg og hætti að tala við hana, hann skipti um símanúmer, blockaði hana á msn og passaði uppá það að hún gæti öruglega ekki haft samband við sig.
Og hann sagði “ég lofa þér því þessa stelpu tala ég aldrei aftur við”

En ekki hvað? nú eru þau hætt saman þessi stelpa og hinn gaurinn þarna og jú, sagan er að endurtaka sig. Félagi minn að sjálfsögðu byrjaður að tala við hana aftur og er alveg viss um að þetta gangi í þetta skiptið og sagði svo við mig “já það er búið að fara svo ílla með hana greyið þannig ég ætla að vera góður við hana”
Þá spurði ég hmmm já og er ekkert búið að fara ílla með þig eða? Hann bara æjj það er ekkert eins ég er viss um að þetta gengur núna.

Ég var bara hreinskilinn vinur og sagði: Ég spái því ekki að þið byrjið saman, sagan er bara að endurtaka sig í þriðja skiptið.

Ég er ekki að spyrja notendur hér að einu né neinu.. langaði bara að leyfa fólki að sjá hvað stelpur geta nú náð miklu valdi á strákum..Og sjálfsagt öfugt líka. En ég spái þessu alls ekki vel og veit alveg hvað mun gerast… aftur.
Cinemeccanica