Já, ég ligg hérna andvaka.. á huga, að gera kork um hvernig mér líður. Einhvernvegin ehv sem mér hefði aldrei dottið í hug að ég ætti eftir að gera. (':


Málið er, að ég og einn besti vinur minn hefur verið í svona on-off sambandi/dúlli/hookup-i lengi.
Guð, ég varð örugglega fyrst hrifin af honum í 6.bekk..
Svo í afmæli fyrir tveim árum hjá vinkonu okkar smullum við alveg saman, og vorum saman í 6 mánuði.
Um sumarið slitnaði sambandið eitthvað á milli okkar og við hættum saman.

Ég kynntist strák á tónleikum sem hann var líka á og dúllaði mér með honum í nokkrar vikur áður en hann reið einmitt þessari sömu vinkonu minni og hélt upp á afmælið sitt, en það er önnur saga..
Svo fór ég til Englands, og varð hrifin af strák sem ég var í ferðalaginu með, en það varð aldrei neitt úr því.
En allavega, þegar skólinn byrjaði aftur um haustið héldum við bara áfram að vera vinir og það voru alltaf svona straumar á milli okkar, kúra smá og svona.

Þegar hann fór svo á fast með einhverri gellu sem einn vinur okkar kynnti hann fyrir, fór ég alveg í rusl. Hann tók eftir því og hætti fljótlega með henni, talaði endalaust um hversu leiðinleg hún væri. Restina af vetrinum vorum við svo einhversstaðar á milli þess að vera bara vinir og að dúlla okkur.

Og í sumar var ég föst út í rassgati með engin samskipti við neinn heima en heyrði eitthvað að hann væri nú orðinn meira kvennagullið en þegar ég talaði við hann heyrði ég bara hversu leiðinlegar þessar gellur væru!
Ég kynnstist svo einum breskum í sumar og dúllaði mér með honum, en hann var nú bara á landinu í viku svo að það var aldrei neitt mikið..

Og svo núna í haust byrjuðum við bara sem vinir, sem fór svo út í dúll.. og æj. Svo fórum við árgangurinn saman til útlanda og þá einhvernveginn slúttuðum við bara ‘sambandinu’ á meðan.. svona til að vera á lausu í kringum krakkana þar. Það var náttúrulega ekkert ákveðið.. heldur bara svona.. æj. :')
Svo fyrir nokkrum vikum byrjaði hann alltaf að taka utan um mig, kyssa mig á hálsinn meðan við föðmuðumst og halda í höndina á mér þegar við vorum saman einhversstaðar.
Ég féll alveg fyrir honum og hef örugglega aldrei verið jafn hrifin af honum.. en þetta var náttúrulega of gott til að vera satt.

Fyrir stuttu var nefnilega ball.. ekkert venjulegt ball, heldur stórt ball með fullt af skólum.
Oh, ég hlakkaði svo mikið til. Fá að dressa mig upp og eyða smá tíma með honum.
En aðþví að ég er í stjórn í nemendafélaginu mínu gat ég ekki farið með honum á ballið.. n strax og ég kom inn kom hann til mín og faðmaði mig. Ég fann alveg á mér hvað þetta yrði frábært kvöld. En svo þurfti ég að vera á fullu til að sja um það sem ég átti að sjá um og gat ekkert verið með honum né neinum öðrum fyrri part kvöldsins. En svo þegar ég var loksins búin að öllu og gat farið að skemmta mér fann ég hann hvergi. Ég fór þá bara að spjalla við einhverjar vinkonur mínar og skemmti mér bara ágætlega, var samt alltaf að velta fyrir mér hvar hann væri. Svo kemur þessi sami vinur minn og kynnir hann fyrir gömlu kærustunni og segir að hann sé bara búin að redda honum gellu!

Ég trúði þessu sko alls ekki, hélt bara að hann væri að vera kurteis og væri að spjalla við stelpuna en það næsta sem ég heyri er það að hann og gellan séu bara í hörku sleik. Þetta eyðilagði alveg kvöldið fyrir mér, en ég var alveg ákveðin í því að láta eins og mér væri sama og lét eins og ég skemmti mér frábærlega.


Næstu dagar á eftir eru búnir að vera hrikalega vandræðalegir þar sem við erum í sama vinahópi en ég er bara búin að reyna að koma fram við hann eins og allir aðrir, bara kát og hress og eins og ég sé ekkert sár.
Og svo ég byrji ekki að tala um helgina.. guuð ég hef örugglega aldrei verið meira confused á ævinni!
Á föstudeginum var alveg eins og þessi gella þarna á ballinu væri ekki til og við værum saman, n ég ýtti honum samt alltaf frá mér og við rifumst smá.
Í gær var ég svo með vinkonu minni og kynntist einhverjum strákum, svo ætlaði ég að labba með vinkonu minni heim.. nei mættum við ekki honum!
Hann hafði þá heyrt okkur vera að tala um hvað einn af þessum strákum var sætur, og af svipnum á honum að dæma var hann ekki sáttur!
Svo að hann hringdi bara í ball-gelluna!
OOOOH MIG LANGAÐI AÐ KYRKJA HANN!


Það virðist einhvernveginn vera eitthvað svona með okkur, ef að annað byrjar með einhverjum eða ehv, þá verður hitt alltaf að ‘hefna sín’. Þ.a.s. að gera hitt öfundsjúkt.
Það er allavega hvernig mér líður, ekkert sem mig langar meira að gera núna en bara að finna mér einhvern gaur og slumma rækilega upp í hann fyrir framan Hann.. en samt ekki.. því að mig langar bara að vera með honum.. og æj.. þetta er orðið alltof langt :'D