Ég er 16 ára kvk og væri alveg til í smá ráðleggingu ;D Ég var á balli í gær og hitti þennan æðislega gaur ;D

Ég hef aldrei verið með strák og allt í einu vorum við bara í hörkusleik og ég sem hafði aldrei kysst strák áður. Þetta var besta tilfinning í heimi. Við vorum bara að dans, vanga og kyssast restina af ballinu og váá hann var fine.

Þegar ballið var búið var þvílíkt erfitt að kveðja hann en hann fékk númerið mitt. Hann var eitthvað búinn að drekka og nú hef ég ekki hugmynd um hvort hann muni eftir mér :S

Ég veit ekki hvað hann heitir, í hvaða skóla hann er ..
Og annað, ef hann hringir, hvað á ég að segja? Á ég að hitta hann eða hvað á ég að gera.
Er þvílíkt óreynd og væri alveg til í einhverja hjálp :D

Takk :D