Ég veit að hann samdi þetta lag um son sinn en mér finnst þetta lag svo fallegt og ég hef hlustað á það endalaust mikið. Þetta lag verður í brúðkaupinu mínu, þó að það verði ekki nærri því strax:)

Undir þínum áhrifum

Ég er ofurseldur þér og uni vel.
Það er annað finnst mér allt mitt hugarþel.
Sem ég horfi á þig sofa finn ég að
það er brotið nú í lífi mínu blað.

Ég hef beðið nokkuð lengi eftir þér,
svo ég segi það hreint alveg eins og er.
Og ég hugsa alla daga til þín heitt.
Alveg ótrúlegt hve allt er orðið breytt.

Það er varla nokkur heppnari en ég.
Þessi tilfinning er ævintýraleg.
Ég er undir þínum áhrifum í dag.
og verð áfram, enginn vafi er um það.

Þú ert náttúrunnar undurfagra smíð,
verður hörpu minnar strengur alla tíð.
Það er ekki nokkur sem að brosir líkt og þú.
Og ég lofa gjafir lífsins fyrr og nú.

Ég er undir þínum áhrifum í dag.
og verð áfram, enginn vafi er um það.

Þú hefur löngu sigrað mig.
Takmarkalaust ég trúi á þig.
Mitt allt er þitt og verður
ókomin ár.

Ég mun elska þig allt fram á hinstu stund.
Uns ég held um síð á feðra minna fund.
En að líkum hef ég tímann fyrir mér
og ég hlakka til að eyða honum með þér.

Það er varla nokkur heppnari en ég.
Þessi tilfinning er ævintýraleg.
Ég er undir þínum áhrifum í dag.
og verð áfram, enginn vafi er um það.

Ég er undir þínum áhrifum í dag.
og verð alltaf, enginn vafi er um það.

:)