Þetta hljómar alveg fáránlega en samt ætla ég að segja frá einu sem gerðist síðasta sumar.

Það var þannig að þessi manneskja leigði hjá okkur í þrjá mánuði í fyrra, þessi manneskja er nánar tiltekið karlkyns með græn augu og brúnt hár og 12 árum eldri en ég(ég er 17)og ekki íslenskur.
Ég varð strax alveg svakalega hrifin af honum og var með hann á heilanum og kom með gjöf handahonum þegar ég kom frá útlöndum og það versta var að ég varð umsátursmanneskja og var alltaf með einhverjar asnarlegar afskanarir þannig ég átti leið þar sem hann var.
Svo leið tíminn og hann þurfti að fara aftur heim til sín og svo seinna fann ég það út að hann átti kærustu út í Finnlandi þar sem hann átti heima það var eitt af verstu augarblikum ævi minnar og ég varð sjúklega afbrýðissöm og er eiginlega það enn þó að ég er að reyna að gleyma honum.

Samt skil ég ekki afhverju ég fékk hann svona á heilann og hegðaði mér eins og kjáni.