Ég kynntist nýlega stelpu sem að mér lýst helvíti vel á. Hún biður mig oft að koma hitta sig og ég er orðinn svona frekar hrifinn af henni og ég HÉLT hún væri það líka… þar til alltíeinu þegar við erum að kúra heima hjá henni að hún byrjar að tala um eitthvern annan gaur.. að hann sé svo heitur… og eitthvað… og samt nýbuin að segja að henni finnist ég vera svo heitur… og ég skyldi hvorki upp né niður og vissi ekkert hvernig ég ætti að láta… svo hefur þetta gerst nokkrum sinnum i viðbot en alltaf vill hún hitta mig á fullu…

ég veit ekkert hvernig ég á að bregðast við þessu eða hvað ég á að segja við hana þegar hún segir þetta… ég vona svo innilega að hún sé ekki bara að leita að einhverjum vinskap, en e´g er nú þegar búinn að kyssa hana og við kúrum frekar oft…

ég hef ekki HUGMYND hvað ég á að gera svo stelpur endilega segið mér hvað er í gangi í hausnum á þessari stelpu…

Takk takk :)

-páll