hæhæ, er ný hérna á huga (eða, búin að vera að skoða hann í smá stund en aldrei átt notendanafn), þetta er fyrsti þráðurinn sem ég skrifa :)

Semsagt. Ég á í svolitlum vanda.
Þannig er að ég er hrifin af strák. (hljómar týpískt, en ekki hætta að lesa :$)
Er búin að vera hrifin af honum í ca 2 mánuði. og þá meina ég sjúúklega hrifin af honum. Ekkert svona, aww hann er krútt, heldur meira svona hugsa um hann öllum stundum og stunda það að dagdreyma um hann þegar mér leiðist (eða ekki þegar mér leiðist..)
Allt gott og blessað með það, en svo kemur vandinn.
Þessi gaur er frekar lokaður… Hann er mjög fyndinn og þannig, ekkert feiminn þannig séð, en hann virðist hleypa mjög fáum að sér, og er allt að því fjandsamlegur við marga, þótt hann fatti það líklegast ekki. Hann er svona gaur sem segir manni bara að stein halda kjafti ef maður er ekki að segja eitthvað nógu merkilegt.
Held að hann hafi aldrei verið með neinni stelpu, en er samt ekki viss, enda talar hann allt að því ekkert um sjálfan sig.
Við erum alveg ágætis vinir, en stundum finnst mér svo eins og hann hati mig. Kemur oft með svona diss komment á mig og svo þegar við erum innan um annað fólk þá á hann það til að tala við alla nema mig (skiljiði?).
Hann er einu ári yngri en ég, ekkert með eitthvað týpískt pretty boy útlit en mér finnst hann alveg gorgeous… fæ bara fiðring í magann við að hugsa um hann.

Ég skil oft ekki afhverju ég er svona sjúúklega hrifin af honum. hef alveg mjög hrifin af öðrum gaurum, en þetta er komið á annað level. kankski því að hann hundsar mig svona alveg? ég veit ekki.


En jæja, kæru /rómantíkar hugarar, einhver ráð?….. er alveg í kleinu.

með fyrirfram þökk

-usopp

Ps. please don't tell me he's gay… >.