Fæ alltaf einhvernvegin gæsahúð af þessu lagi =) mjög rómó lag :P

ÞÚ EIN

Þú ein ert mín
mín ást ei dvín.
Elskan, trúðu mér,
ég er alsæll
með þér.

Loksins fann ég það
sem leitaði ég að,
ást sem ung og hrein
úr augum þínum skein,
þú ein.

Þú ein mig átt,
jafnt dag sem nátt
því við erum eitt,
ei neitt þar um
fær breytt.

Mundu’ að ætíð er
ein í hjarta mér
það ná mun aldrei nein
að negla’ á milli flein,
þú ein.

Þegar greinir okkur á
og erfiðleikar magnast þá
aldrei samt þú æðrast skalt
því ástin sigrar allt.

Hvað sem gerast kann
mín kæra, þér ég ann.
Mín lífsins braut er bein,
björt og aðeins ein,
þú ein.