Ég var/er að dúlla mér með strák sem býr svona sirka hálftíma frá mér..
ég hitti hann MJÖG sjaldan og þegar ég hitti hann þá er það yfirleitt alltaf bara hæ og bæ ..
ég er búin að segja við hann að ég sé ástfangin af honum og ég fékk til bara ég HELD að ég sé líka ástfanginn af þér..
en málið með það að hann sýnir það enganvegin!
Ég sendi honum sms og hann svarar ekki ..
hringir aldrei í mig til að spjalla eða spyrja hvernig dagurinn var hjá mér eða eikkað þannig ..
Allir góðu vinirnir mínir eru alltaf að segja við mig að ég eigi bara að láta hann vera og finna mér eitthvern annan..
mér finnst ég eiga eikkað betra frá honum skilið en þessa endalausu stæla.. en svona samt ekki..
ég er bara eikkað svo ALLTOF ástfanginn..
svo er ég líka búin að vera að heyra það að seinustu helgi þá hafi hann verið með eitthverri aðrari stelpu..
en ég veit ekkert hverju ég á að trúa .. ;/

Fokk.. þetta er bara eikkað eintómt bull hjá mér ..
Bless!