Okei sko, ég er stelpa sem er hrifin af strák, en ekki bara einum, heldur þremur ! Eða þúst, ég veit ekki hverjum ég er svona ‘ alvarlega ’ hrifin af .. Sætur NR. 1, hann er með mér í bekk og er voða sætur, yndislegur og allt það. En hann er svona lokaða týpan, nennir ekki að hitta mann nema vera með vinum sínum og svona, og plús það að ein besta vinkona mín er líka hrifin af honum !
Svo er það sætur NR. 2, hann reyndar á heima í rvk ( ég er á ak ) og hann er líka þvílíkt sætur og svona, en hann er með mig blokkaða á msn núna, því ég held að hann sé í fýlu við mig :( en hann er samt mest svona sweet af þeim ..
Svo er það sætur NR. 3! Hann á heima á húsó, en kemur frekar oft til ak. Hann er svona, að mínu mati lang sætastur af þeim, en hann er voða lokaður líka eins og þessi NR. 1, ef maður segir við þá inná msn ‘ hæsæti<3 ;* ’ þá segja bara NR 1 & 3 ‘ hæ ’ en þessi NR. 2, hann segir alltaf ‘ hæ ;*:D ’. Og ef maður segir hvað segiru svo ? :), þá koma með 1 & 3 bara fínt, en 2 kemur með gott bara ! en þú ? :D
Þannig að tæknilega er 2 lang skemmtilegastur ..
Svo hef ég ekki hugmynd um hvort einhver þeirra sé hrifinn til baka ! Ég samt efast nú um það ..
Svo langar mig oft að bjóða 1 heim til mín yfir mynd og poppi eða e-h, en ég er bara aaaalltof feimin til þess !
Svo er ég að fara til rvk næstu helgi, og mig langar dáltið að hitta 2 !

æ vá, þetta meikaði ekki sense :')