ég er með 2 vandamál

1. ég er hrifin af gaur og get ekki fyrir mitt litla líf komist hvort að hann sé hrifin af mér á móti… stundum er hann alveg bara æðislega kammó og til að gera allan andskotann fyrir mig og eða með mér en núna þá hef ég bara ekkert heyrt eða séð hann í 10 daga! and it's driving me insane! hvað haldið þið?

2. vinur minn sem ég er búin að þekkja í 3 ár er allt í einu farinn að reyna við mig. vitandi það að ég hef ekki þannig áhuga á honum… hvernig segji ég án þess að særa hann (því að setninginn þú ert bara ekki mín týpa(og ég er ekki að segja þetta af því bara ég vil gaura sem er svona hressir og svona, hann er alltof rólegur fyrir mig, og drægi mig örugglega niður í meira þunglyndi en ég er þegar í) virðist ekki hafa nein minnkunaráhrif á viðreynsluna)?

ef þið getið hjálpað mér, þá væri það vel þegið.