Jæja,

Þannig er mál með vexti að ég er búin að vera með gaur í meira en mánuð. Ég hitti hann reyndar í svona 5 klukkutíma í júní:| en við vorum í símasambandi daglega og hann var alltaf að hringja og svona..

En já við semsagt hittumst og kynntumst fyrst í Nóvember þegar ég var alveg yfir mig ástfangin af vini hans (sem var reyndar algjört fífl og notari í þokkabót)og hann ný búin að lenda í því að besti vinurhans stakk undan honum unnustu sinni.. En gaurinn var alltaf að reyna við mig í smsum og svona, segjandi hvað ég væri falleg og hvað honum langaði að kynnast mér og einhvað þannig en ég var einhvernegin ekki að sætta mig við aldurinn (hann er 30 og ég veit það það er svolítið mikið eldri en ástin sér ekki aldur), það að ég þyrfti hugsanlega að hitta vin hans aftur ef ég myndi byrja með honum og náttúrulega ég var ekkert smá sár eftir vin hans.

svo eftir jól byrjaði hann með stelpu sem er jafngömul og ég. þau trúlofuðu sig, hún varð ólétt og fór í fóstureyðingu og hann missti virðinguna fyrir henni og það fór allt til fjandans hjá þeim hún fór að gruna hann um framhjáhald og fór að ríða fyrrverandi kærastanum sínum.

ég fékk svona druslu skeið (tímabil) sem entist frá mars og út apríl og reið vini bróður míns, bróður fyrrverandi, sameginlegum vin mínum og fyrrverandi. og einhvað kjaftæði.


En þegar hann komst að þessu með sína fyrrverandi og hennar fyrrverandi (það er víst núverandi núna(hann var góður vinur gaursins:| greinilega ekki það góður)) þá var ég fyrsta manneskjan sem hann hringdi í afþví fórum einhvað á rúntinn nóttina áður en það gerðist ekkert afþví ég vildi ekkert gera afþví hann átti kærustu.. en allavegana þá gerðist einhvað á þessum rúnti og við fórum á rúntinn á nóttunni næstu 4-5 nætur og það gerðist einhvað þá líka og hann var alltaf að tala um hvað hjartað hans vildi og það var ég.

Svo sagðist hann vera ástfanginn yfir haus af mér og ég náttúrulega af honum. og við byrjum saman en það var einhvað 2 dögum eftir að hann hætti með fyrrverandi sem hann saðgi mér að hann hafi virkilega fallið fyrir. en já alltílagi með það svo um mánaðarmótin sá bróðir minn hann og bróðir minn kom með alveg helljarinnar ræðu yfir mig svo hringdi hann í hann og fór með ræðu yfir hann líka, þá varð gaurinn smeikur og ég sá hann varla neitt í heilann mánuð.

en svo versnaði þetta.. ég er með systir hórunnar (sem hélt framhjá honum) á msn og hún var allt í einu komin með nafnið á kærastanum mínum í messageið og það sóð “ég elska þig *****(l)” þá varð ég pínu sár en þessi litla hóra var sú sem svaf hjá mínum fyrrverandi s.s. vinurinn sem ég var yfir mig ástfangin af fyrir jól. svo ég fór að tala við hann og hann sagði mér að ekkert vera að ergja hana afþví hann legir ennþá heima hjá fyrrverandi:| afþví að mamma fyrrverandi og hórunnar fílar hann svo mikið að hann vildi hafa hann áfram þarna eftir að hún var búin að henda dóttur sinni út af heimilinu.

svo fór hann á sjó og litla hóran (sem er 15 ára b.t.w) byrjaði virkilega að bögga mig.. hún fór inná msn hjá sameiginlegum vinum okkar og fór að segja að þau væru saman og einhvað, frænka mín(þekki hana ekki rass) sem er vinkona hennar fór einhvað að segja að þau hefðu riðið fyrir framan hana sem ég trúði enganvegin afþví hann er ekki týpan.

svo snappaði ég á hann afþví bíllinn hans var fyrri utan hjá hórunni (hann var þá á sjó) og þá komst ég að því að hann væri bara parkeraður þarna og hóran var bara einhvað ímyndunarveik og einhvað. og hann sagði mér að hann væri ekki mikið fyrir það að vera með tveim í einu.

svo er heitir hún alltaf einhvað á msn “ég elska þig mestast” og “við erum búin að vera saman í mánuð” og einhvað bull.

svo kom hann til mín í gær (LOKSINS!) eftir að vera búin að vera á kafi í vinnu (að hans sögn) og við áttum okkur góðar stundir og einhvað svo fór hann einhvað að skoða sms-in mín og sá smsin frá bróður fyrrverandi sem ég síðan komst að að hann var trúlofaður systur hans en það var komið einhvað ár síðan þau hættu saman:S og hórunni og hann sagði “ekkert vera að svara henni, þú veist betur, ég og hún erum bara vinir ekkert meir, ég er bara með þér ástin mín” en þá var ég ekki búin að sjá hann í mánuð.. og svo fór hann einhvað að skoða myndir í símanum sínum og sá ég ekki mynd af henni vera að keyra nýja bílinn hans og einhvað kjaftæði.

ég meina ef hann getur fundið tíma fyrir hana afhverju getur hann þá ekki fundið tíma fyrir mig!?!?
ok ég skil alveg ða hann þurfi smá tíma til að komast yfir fyrrverandi en hann þarf ekkert að vera að hanga með 15 ára systur hennar. það er eins og ég myndi fara að hanga með 3 ára bróðir fyrrverandi!:| sami þroski í þeim báðum!

Svo eru fyrrverandi hans sem héldu framhjá honum einhvað að reyna ná honum aftur svo hann er með 4 stelpur á eftir honum en hann segir mér að hann vilji bara vera með mér og hann talar alveg við mig um þetta.

en vá ég er að verða klikkuð á þessi lífi mínu, vinkona mín segir að það eigi ekki að hleypa mér út úr húsi afþví ég fer einhvernvegin að finna mér einhvað svona:@

ef þið nennið að lesa hina korkana mína þá skiljið þið hvað vinkona mín meinar..

En vá ég þurfti ekkert smá á því að halda að skrifa þetta niður og deila þessu með einhverjum sem þekkir mig ekki ég er búin að vera að gera mig brjálaða með því að hafa þetta í hausnum á mér.

samantekt:
Ok ég er yfir mig ástfangin af þessum gaur sem segist vera ástfangin af mér og sýnir það þegar hann er með mér en hann getur ekki fundið tíma fyrir mig.
Ég treysti honum ekki alveg fullkomlega.
Fjölskyldan mín þolir hann ekki(þau eru samt ekkert búin að fá að kynnast honum).
Litla hóran er ennþá að bögga mig.
Hvað á ég að gera!?!?
Ekki segja “dömpa honum” því ég fæ það svar frá vinkonum mínum.
Á ég að biðja hann að finna sér aðra íbúð svo ég geti heimsótt hann og sleppt því að ráðast á hóruna?
Ég veit ekki hvort hann treysti mér útafþví að nánast allar kærusturnar hans síðustu 4-5 árin hafa endað með vinum hans.
En ég er samt engan vegin týpan sem heldur framhjá, lesið korkinn um karlmennh og kvennmennh á /kynlíf og þið sklijið afhverju;).


En takk fyrir að lesa þetta hjá mér, ég vona að ég hafi náð að gera þetta nógu vel svo hægt er að lesa þetta:P